Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag nauðasamning Kaupþings banka. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV. Kröfuhafar höfðu samþykkt samninginn 24. nóvember síðastliðinn.

Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur staðfest nauðasamning Glitnis í byrjun þessa mánaðar. Krafa slitastjórnar Landsbankans um staðfestingu nauðasamnings fór fyrir Héraðsdóm klukkan tíu í morgun en óvíst er hvenær úrskurður dómara liggur fyrir.