Fyrstu skóflustungur voru teknar í dag að viðbyggingu við hátæknisetur líftæknifyrirtækisins Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík. Fjárfesting í stækkuninni – byggingunni og tækjabúnaði – er áætluð ríflega 10 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Viðbyggingin mun hýsa lyfjaþróun, áfyllingu lyfja, skrifstofur og vöruhús auk þess sem Alvotech mun veita líftæknisviði HÍ aðstöðu og eiga áfram í samstarfi við háskólann. Aðstaðan er auk þess sögð munu nýtast háskólanum til að efla enn frekar meistaranám í iðnaðarlíftækni og gefa fleiri nemum kost á starfsnámi hjá fyrirtækinu á meðan á námi stendur. Byggingin verður 12.500 m2 sem er tæp tvöföldun á núverandi aðstöðu Alvotech í HÍ og eru verklok áætluð í lok árs 2022.

Í tilkynningunni segir að Alvotech sé með átta líftæknilyf í þróun, sem munu fara á markað á næstu árum. Gert er ráð fyrir að starfsmannafjöldi fyrirtækisins á Íslandi muni fara úr 410 í um það bil 580 þegar hátæknisetrið verður tilbúið, að megninu til sérfræðingar.

Haft er eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni Alvotech: „Það er einstaklega ánægjulegt að ljúka þessu erfiða ári sem einkenndist af baráttunni við Covid-19 veiruna, með svona jákvæðu skrefi til framtíðaruppbyggingar fyrirtækisins. Það var hvorki sjálfgefið né auðvelt, í miðjum gjaldeyrishöftum árið 2013, að taka ákvörðun um að byggja fyrirtækið Alvotech upp á Íslandi. Eftir ítarlega skoðun á mörgum kostum var það að lokum ákvörðun stjórnenda að staðsetja fyrirtækið hér á landi. Það er því einstaklega ánægjulegt, nú sjö árum seinna að tvöfalda aðstöðuna á Íslandi og gera fyrirtækið þannig í stakk búið til alþjóðlegrar markaðssetningar á fyrstu líftæknilyfjunum. Væntingar okkar eru að Alvotech verði ein af stoðum Íslands til öflunar gjaldeyristekna. Ég vil þakka stjórnendum Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Vísindagarða fyrir samstarfið“.

Alvotech var stofnað árið 2013, en skömmu síðar hófst bygging hátækniseturs fyrirtækisins í Vatnsmýri.