Sölvi Rögnvaldsson, B.Sc. nemi í stærðfræði við Háskóla Íslands, hlaut í dag nýsköpunarverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Fékk hann verðlaunin fyrir verkefnið Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli .

„Leiðbeinendur hans voru Sigrún Helga Lund, dósent í líftölfræði við Háskóla Íslands, og Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við Læknadeild Háskóla Íslands," segir í fréttatilkynningu frá embættinu.

„Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Sölva verðlaunin.

Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli er tölfræðilíkan sem aðstoðar lækna við að ákvarða meðferð sjúklinga með mergæxli, sem er alvarlegt krabbamein í beinmerg.

Líkanið notar upplýsingar um aldur, kyn og fyrirliggjandi sjúkdóma til að meta horfur sjúklingsins og hefur betra forspárgildi en sá áhættureiknir sem nú er notaður í blóðlækningum.

Byggði á sænskum gögnum

Við þróun áhættureiknisins var notað umfangsmikið gagnasafn sem er einstakt á heimsvísu. Gögnin innihalda upplýsingar um sjúkdómsgreiningar og lifun ríflega 13.000 sænskra mergæxlissjúklinga á árunum 1985-2013.

Til að gera áhættureikninn aðgengilegan blóðmeinasérfræðingum var útbúin vefsíða og iPhone smáforrit og stefnan er að koma áhættureikninum í notkun um allan heim. Aðferðafræðina sem þróuð var í verkefninu mætti ennfremur nota til að smíða áhættureikna fyrir aðra sjúkdóma."

Jafnframt fengu fjögur önnur verkefni sérstaka viðurkenningu forsetans, en þau báru yfirskriftina:

  • Framköllun fælniviðbragðs með sýndarveruleika, unnið af Herði Má Hafsteinssyni, Ara Þórðarsyni og Gunnari Húna Björnssyni, Gervigreindarsetur HR.
  • Hulda: Hljóð- og ljósskúlptúr, unnið af Lilju Maríu Ásmundsdóttur, LHÍ.
  • Kortlagning taugabrauta sameinuð þrívíddarmódelum til stuðnings við undirbúning heilaskurðaðgerða, unnið af Írisi Dröfn Árnadóttur, HR.
  • Ræktun smáþörunga, nýr íslenskur hátækniiðnaður, unnið af þeim Bergþóri Traustasyni, Tryggva E. Mathiesen og Unni Elísabetu Stefánsdóttur, HÍ.