Borgarráð ákvað á fundi sínum í dag að úthluta Háskóla Íslands lóð við Sæmundargötu 15 – 19 vegna Vísindagarða. Á lóðinni, sem er tæpir sjö þúsund fermetrar, fyrirhugar alþjóðlega lyfjafyrirtækið Alvogen að reisa um ellefu þúsund fermetra byggingu en þar verður starfrækt Hátæknisetur í samvinnu við Vísindagarða Háskóla Íslands.

Alvogen hyggst hefja framkvæmdir við Hátæknisetrið fyrir árslok og stefnt er að því að húsið verði fullbúið innan tveggja ára.  Verkefnið felur í sér eina stærstu fjárfestingu einkafyrirtækis á Íslandi frá hruni. Heildarfjárfesting Alvogen vegna verkefnisins er áætluð um 25 milljarðar króna, þar með talið uppbygging á aðstöðu á Íslandi fyrir um 6 milljarða króna.

Hátæknisetrið mun hýsa alþjóðlegar skrifstofur Alvogen. Þar mun einnig fara fram þróun- og framleiðsla líftæknilyfja. Í Hátæknisetrinu munu um 200 starfsmenn Alvogen starfa á næstu árum.

„Þetta er tímamótamál og gífurlegt fagnaðarefni fyrir Reykjavík. Í fyrsta lagi hefur Reykjavík orðið ofan á í alþjóðlegri samkeppni um að ná þessari mikilvægu starfsemi og fjárfestingu til sín. Það sýnir hvað hægt er að gera með nánu samstarfi borgarinnar og háskólanna. Í öðru lagi er þetta stærsta beina erlenda fjárfesting á Íslandi frá hruni. Síðast en ekki síst er þetta upphafið að uppbyggingu Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Sú uppbygging felur í sér nýtt og spennandi nýsköpunarsetur og mikla innspýtingu í þekkingarhagkerfi borgarinnar með nýjan stóran vinnustað fyrir 200 starfsmenn í hátækniiðnaði. Öll þessi atriði eru í fullkomnu samræmi við nýja atvinnustefnu borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í Hátæknisetri Alvogen er fyrirhugað að þróa og framleiða samheitalyfjaútgáfu líftæknilyfja sem eru nú þegar á markaði og markaðssetja þau þegar einkaleyfi þeirra renna út. Lyfin eru öll í hópi söluhæstu lyfja í heiminum í dag og seljast fyrir tugi milljarða bandaríkjadala á ári. Undanfarna mánuði hefur Alvogen lagt mat á ákjósanlega staðsetningu fyrir starfsemina og þykir Ísland nú ákjósanlegasti staðurinn fyrir byggingu Hátækniseturs. Ýmsir þættir hafa hinsvegar áhrif á endanlega niðurstöðu, s.s. leyfisveitingar.

Hátæknisetrið verður rekið sem hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands og mun Alvogen m.a. hafa samstarf við deildir og stofnanir innan Háskóla Íslands, þar á meðal verkfræðideildir og lyfjafræðideild skólans.

„Þetta er mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands og við fögnum mjög fyrirhuguðu samstarfi við Alvogen og Reykjavíkurborg. Með þessu verkefni getur skólinn hagnýtt gríðarlega þekkingu sem hefur byggst upp í áratuga kennslu- og rannsóknarstarfi.  Samstarf af þessu tagi er gott dæmi um með hvaða hætti skólinn getur komið með beinum hætti að uppbyggingu verðmæta- og gjaldeyrisskapandi atvinnugreina á sama tíma og stórkostleg tækifæri skapast fyrir nemendur og vísindamenn í mörgum greinum,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í tilkynningu. .

Hilmar B. Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands segir að það skipti háskólann miklu að Alvogen  velji hann til væntanlegs samstarfs.

„Ísland var einn af fleiri kostum sem fyrirtækinu stóð til boða við þessa uppbyggingu.  Það er til marks um þá miklu þekkingu sem byggð hefur verið upp hér í landinu að fyrirtækið vilji byggja upp þessa starfsemi í tengslum við háskólann hér,“ segir Hilmar í tilkynningunni.