Ársfundur Orkuveitunnar var haldinn í höfuðstöðvum fyrirtækisins í dag og kynnti þar Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, helstu niðurstöður rekstursins. Þar talaði hann um að stærsta hindrunin í rekstri fyrirtækisins sé að baki en þar á hann við tæplega 25 milljarða afborgun af lánum sem Orkuveitan þurfti að standa undir á síðasta ári.

VB Sjónvarp ræddi við Bjarna.