Stærsta lúxusvörukeðja heims, LVMH, hefur keypt meira hlutafé í töskuframleiðandanum Hermes og á nú rúm 22% hlut í félaginu. Samkvæmt tilkynningu frá LVHM er ráðgert að auka enn við hlut þess í Hermes með tilliti til aðstæðna og markaðsaðstæðna.

Samkvæmt frétt Reuters er ekki ætlun LVMH að yfirtaka Hermes en það eru einungis 14 mánuðir síðan eignarhald LVMH í Hermes var kunngjört.