Riot Games, framleiðendur hins vinsæla tölvuleiks League of Legends, tilkynntu í dag að heimsmeistaramótið í leiknum færi fram í Laugardalshöll í október og nóvember næstkomandi. Heimsmeistarmótið er stærsta rafíþróttamót heims, en það er lokamót keppnistímabilsins í atvinnumannadeild League of Legends þar sem leikið er um milljónir dollara í verðlaunafé.

Beinar útsendingar frá keppni í leiknum njóta mikilla vinsælda, en alls fylgdust um 100 milljón áhorfendur með úrslitaviðureign heimsmeistaramótsins 2019 í beinni útsendingu.

„Við erum mjög spennt fyrir að geta boðið upp á ótrúlega upplifun af heimsmeistaramótinu á Íslandi, þar sem bestu liðin og leikmennirnir fá tækifæri til að keppa,“ segir John Needham, yfirmaður rafíþrótta hjá Riot Games. „Það verða mjög sterk lið sem munu berjast um heimsmeistaratitilinn í ár, og við getum varla beðið eftir að sjá þá bestu berjast um titilinn.“

Þetta er í annað sinn sem stórt mót í League of Legends tölvuleiknum fer fram í Reykjavík. Síðastliðið vor fór hér fram boðsmótið Mid-Season Invitational í Laugardalshöll.

Í fréttatilkynningu segir að vel heppnuð framkvæmd þess móts vóg þungt í þeirri ákvörðun að halda heimsmeistaramótið einnig hér á landi, en engin covid-19 smit komu upp í tengslum við mótið þá.

Búast má við miklum umsvifum í kringum mótið, en í heildina er reiknað með að um og yfir 600 starfsmenn og keppendur fylgi mótinu sem stendur í rúmar fjórar vikur. Mótið verður leikið í gömlu höllinni að þessu sinni, en gert er ráð fyrir að því fylgi lítið rask fyrir aðra starfsemi í Laugardalshöll, enda verði fjöldabólusetningum sem þar hafa farið fram lokið á þessum tíma.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

„Tölvuleikjaiðnaðurinn er risastór á heimsvísu og möguleikarnir nánast óþrjótandi. Á Íslandi hafa orðið til fjölmörg fyrirtæki á undanförnum árum sem eru mikilvægur þáttur í fjórðu stoðinni í útflutningstekjum okkar, hugverkaiðnaðinum. Þau tengsl og þekking sem myndast í kringum svona stór alþjóðleg rafíþróttamót munu skila sér til baka í auknum tækifærum í íslenskri nýsköpun, ekki síst á sviði tölvuleikjaiðnaðar.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur:

„Þetta er auðvitað annað spennandi tækifæri fyrir rafíþróttir í Reykjavík að úrslitakeppnin í heimsmeistaramóti League of Legends verði hér í borginni. Skipuleggjendur og aðrir eiga hrós skilið fyrir að koma okkur á kortið í tölvuleikjaheiminum og auðvitað er áhugi erlendra aðila á borginni sem áfangastað fyrir viðburði sína góður vitnisburður fyrir okkur og innviðina sem hér er til staðar.“

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu:

„Það er mikill gæðastimpill á fagmennsku íslenskra fyrirtækja sem vinna við framkvæmd viðburða hér á landi að fyrirtæki á borð við Riot Games velji að koma til Íslands með þetta risamót við þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja. Að sama skapi eru þetta spennandi tækifæri fyrir bæði íslenskar rafíþróttir og íslenskan leikjaiðnað, en við gerum ráð fyrir að mikill áhugi verði á mótinu og Íslandi á meðan á því stendur.”

Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasambands Íslands:

„Það er sannur heiður að Riot séu að koma aftur til Íslands með heimsmeistaramótið sitt og er það í fyrsta sinn í sögu leiksins sem allir alþjóðlegu viðburðir ársins fara fram í sama landi. Þar að auki er þetta mikil viðurkenning á góðu starfi Meet in Reykjavík, RÍSÍ og Íslandsstofu í kringum komu Riot fyrr á árinu. Með þessum viðburðum kemur mikil landkynning, gjaldeyristekjur og svo er þetta gífurleg innspýting á áhuga og framtakssemi í rafíþróttasamfélagið á Íslandi. Þetta styrkir líka stöðu íslenskra rafíþrótta og íslensks leikjaiðnaðar á alþjóðavettvangi sem getur skilað miklu til samfélagsins á komandi árum og áratugum.“