Hugrún Hjálmarsdóttir, Sigrún Hólm Þórleifsdóttir og Gunnar Valur Steindórsson hafa verið ráðin til nýsameinaðs sveitarfélags á Austurlandi. Sveitarfélagið, sem ekki hefur fengið formlegt nafn, samanstendur af Borgarfjarðarhrepp, Djúpavogshrepp, Fljótsdalshéraði og Seyðisfjarðarkaupstað. Nýja sveitarfélagið verður það stærsta á landinu.

Hugrún Hjálmarsdóttir
Hugrún Hjálmarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Hugrún Hjálmarsdóttir tekur við starfi framkvæmda- og umhverfsstjóra. Hún hefur starfað sem stjórnandi hjá verkfræðistofunni Eflu á Austurlandi síðastliðin 6 ár. Hún er jafnframt meðeigandi í Eflu og tók nýlega sæti í stjórn fyrirtækisins. Hugrún lauk meistaranámi í byggingaverkfræði frá DTU árið 2002 og BS gráðu í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998.

Sigrún Hólm Þórleifsdóttir
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir tekur við starfi verkefnastjóra mannauðsmála í sameinuðu sveitarfélagi. Áður starfaði Sigrún sem fjármálastjóri hjá INNI fasteignasölu á Egilsstöðum. Hún var um árabil stöðvarstjóri á N1 á Egilsstöðum. Sigrún lauk meistaranámi í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2017 og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á mannauðsstjórnun frá HA árið 2008. Þar að auki hefur Sigrún lokið námi í kennslufræði til kennsluréttinda frá HA og löggildingarnámi fyrir fasteigna- og skipasala.

Gunnar Valur Steindórsson
Gunnar Valur Steindórsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Gunnar Valur Steindórsson tekur við stöðu verkefnastjóra rafrænnar þróunar og þjónustu. Undanfarin 15 ár hefur Gunnar starfað sem verkefnastjóri og sérfræðingur í tölvudeild Eimskipa. Áður starfaði hann sem vefstjóri í kynningardeild Eimskips og sem grafískur hönnuður hjá Icelandcomplete. Gunnar Valur lauk námi í Iðnhönnun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2000. Hann lauk námi frá Margmiðlunarskólanum í Multimedia design árið 2003 og lagði stund á nám í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík árið 2016.

„Það var einkar ánægjulegt að sjá hve margir hæfileikaríkir umsækjendur sóttu um. Fjöldi umsækjanda, menntastig þeirra og hæfileikar, fór langt fram úr væntingum okkar. Það er greinilegt að það er mikill áhugi fyrir að vinna og starfa í nýja sveitarfélaginu,” segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, en hann var með yfirumsjón yfir ráðningunum.

Kosið verður til sveitarstjórnar þann 19. september. Upphaflega stóð til að kjósa þann 18. apríl en kosningum var frestað sökum kórónuveirufaraldurs. Nýlega fóru fram ráðgefandi kosningar um nýtt nafn á sveitarfélaginu. Bar þar nafnið Múlaþing sigur úr býtum.