Seil ehf, sem er stærsti hluthafinn í Vinnslutöðinni hf., með 40,5% hlutafé, óskar eftir því við stjórn félagsins að boðað verði til hluthafafundar þar sem stjórnarkjör verði endurtekinn.

Miklar deilur í kjölfar síðasta aðalfundar

Miklar deilur hafa skapast um stjórnarkjör á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf 6.júlí síðastliðinn, líkt og Viðskiptablaðið hefur fjallað um, og segjast þeir vilja með þessu taka allan vafa af um hver sé rétt kjörin stjórn félagsins. Segja þeir þetta einfalda og eðlilega leið til að velja félaginu stjórn í samræmi við vilja hluthafa.

Í Vinnslustöðinni eru liðlega 240 hluthafar. Á aðalfundinn var mætt fyrir eigendur 99,35% hluta í félaginu, en í margfeldiskosningu til fimm manna stjórnar þarf þá hver stjórnarmaður að fá 16,67% atkvæða til að ná kjöri.

Minnihlutinn segir stjórnarkjörið ólögmætt

Guðmundur Kristjánsson, aðaleigandi Brims hf. og aðilar honum tengdum fara með 32,88% eignarhlut í Vinnslustöðinni, en hann heldur því fram opinberlega að stjórnarkjörið á síðasta aðalfundi hafi verið ólögmætt. Segir í tilkynningu frá Seil ehf að

„Því hefði mátt ætla að hann tæki ósk um hluthafafund með nýju stjórnarkjöri fagnandi til að fá hreinar línur og að vilji hluthafa fengi að ráða. Því er samt ekki að heilsa. Seil ehf. hefur borist erindi frá lögmanni Brims þar sem hótað er lögbanni, málssókn og bótakröfum vegna óskar um hluthafafund. Slík viðbrögð eru því miður kunnugleg úr samskiptum þessa tilteknu hluthafa við meðeigendur sína frá fyrri tíð.“