Stjórn Horns III slhf., stærsta einstaka hluthafa Ölgerðarinnar með 17,6% hlut sem sjálfur er að mestu í eigu lífeyrissjóða auk Landsbankans, hefur boðað til hluthafafundar þann 1. febrúar næstkomandi sem taka skuli afstöðu til tillögu stjórnarinnar um að félagið afhendi hluthöfum sínum allan eignarhlutinn í Ölgerðinni með hlutafjárlækkun. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Ölgerðinni.

Verði tillagan samþykkt verður sótt um undanþágu frá innköllunarskyldu til fyrirtækjaskár og mun framsal hlutareignarinnar í Ölgerðinni fara fram að fenginni þeirri undantekningu.

Akur fjárfesting – annar af stærstu hluthöfum drykkjarvöruframleiðandans sem sjálfur er að sama skapi í eigu lífeyrissjóða auk Íslandsbanka – afhenti hluthöfum sínum 1. desember síðastliðinn helming þess 12,8% hlutar sem hann þá átti.

Stærstu hluthafar Horns III

Hluthafi Hlutur í Horni Óbeint í Ölgerðinni
Lífeyrissj. verzlunarm. 19,90% 3,50%
Gildi - lífeyrissjóður 15,00% 2,64%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 9,59% 1,69%
Landsbankinn 5,63% 0,99%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 5,45% 0,96%
Lífeyrissj. bankam. 4,63% 0,81%
Almenni lífeyrissjóðurinn 4,17% 0,73%
Brú lífeyrissjóður 4,17% 0,73%
Stapi - lífeyrissjóður 4,17% 0,73%
SL lífeyrissjóður 3,33% 0,59%
Eignarhlutdeild í Horni III slhf. og óbeinn eignarhlutur í Ölgerðinni í gegn um eignarhaldið í Horni.