Stærsti Legoland-vatnsgarður í heimi opnaði á dögunum í Malasíu í Asíu. Þetta er jafnframt fyrsti vatnsgarðurinn sem Legoland opnar í Asíu.

Í garðinum eru meira en 20 vatnsrennibrautir, en einnig 70 Lego-líkön. Til stendur að opna hótel á næsta ári við rennibrautagarðinn.

Eitt athyglisverðasta tækið í garðinum er rennibraut þar sem börn byrja á því að búa sér til eigin fleka, úr mjúkum Lego-kubbum, og renna sér síðan á honum niður rennibrautina.

Frá þessu er greint á vefnum Leisure Management.