Liðlega 70% aðspurðra segjast vera andvígir því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitarfélögum. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 45,5% vera mjög andvíg því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum, 25,8% sögðust vera frekar andvíg, 18,8% sögðust vera hvorki andvíg né fylgjandi, 7,2% sögðust vera fylgjandi og 2,8% sögðust vera mjög fylgjandi því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum.

Hlutfall mjög andvígra var hæst á meðal þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn en lægst á meðal þeirra sem sögðust styðja Vinstri-græn. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn sögðust 54,0% vera mjög andvíg því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum, borið saman við 33,4% þeirra sem sögðust styðja Vinstri-græn.

Hlutfall þeirra sem var fylgjandi var hæst hjá þeim sem sögðust styðja Samfylkinguna, Vinstri-græn og Bjarta framtíð en lægst hjá þeim sem sögðust styðja Sjálfsstæðisflokkinn. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 16,6% þeirra sem sögðust styðja Samfylkinguna vera mjög eða frekar fylgjandi því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum, borið saman við 15,8% þeirra sem sögðust styðja Vinstri-græn, 13,8% þeirra sem sögðust styðja Bjarta framtíð og 5,4% þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn.

Könnunin var gerð dagana 26. september til 1. október 2013. 968 einstaklingar, 18 ára og eldri, svöruðu spurningunni.