Dómsmálaráðuneytið staðfestir í dag að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er einn í kjöri til embættisins í sumar og er því sjálfkjörinn.

Frestur til að skila framboðum til kjörs forseta Íslands er fram á að fara 28. júní 2008 rann út föstudaginn 24. maí sl. Í kjöri til embættisins er Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti Íslands, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar segir jafnframt:

„Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent Hæstarétti framboð Ólafs Ragnars Grímssonar til forsetakjörs, með skírskotun til ákvæðis 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36 12. febrúar 1945. Jafnframt fylgja meðmæli tilskilins fjölda kjósenda úr landsfjórðungi hverjum, sbr. auglýsingu forsætisráðuneytisins frá 25. mars sl., svo og vottorð yfirkjörstjórna um að meðmælendur séu kosningabærir. Ennfremur fylgir endurrit úr gerðabók ráðuneytisins fyrir forsetaframboð. Framboðið er löglega fram komið og fylgiskjöl svo úr garði gerð sem lög mæla fyrir.“