Breski bankinn HBOS staðfesti rétt í þessu að Lloyds hefði gert tilboð í bankann en verði af samruna bankanna verður til stærsti banki Bretlands.

Á vef BBC kemur fram að markaðsvermæti sameinaðs banka verður um 30 milljarðar punda.

Þá er greint frá því að samruninn sé vel þóknanlegur ríkisstjórn Bretlands segir BBC að forsætisráðherrann sjálfur taki þátt í samningaviðræðunum.

Þá hafi bæði fjármálaráðuneytið Bretlands og eins breska fjármálaeftirlitið hvatt til samrunans með óformlegum hætti.