Áskrifendur dagblaðsins The New York Times (NYT) eru orðnir 6,5 milljónir talsins en tekjur af stafrænni þjónustu eru orðnar meiri en tekjur af prenti í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins. Financial Times segir frá .

Fjölmiðilinn bætti við sig 669 þúsundum áskrifenda frá apríl til júní síðastliðnum. Ólíkt mörgum öðrum fjölmiðlum hefur NYT haldið áfram að ráða blaðamenn í faraldrinum og stefnir á að vera komið með 10 milljónir áskrifenda innan fimm ára.

Sjá einnig: NYT dregur sig úr Apple News

Tekjur af stafrænni þjónustu á öðrum ársfjórðungi námu 189 milljónum dollara en tekjur af prentáskrift 175 milljónir dollara. Auglýsingatekjur lækkuðu hins vegar um 44% milli ára og fyrirtækið varaði við 35-40% samdrætti í auglýsingatekjum á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður NYT lækkaði einnig um 6% og nam 23,7 milljónum dollara.

Meredith Kopit Levien tók við af Mark Thompson, fyrrum framkvæmdastjóri BBC sem forstjóri NYT í síðasta mánuði. Thompson hafði frá árinu 2012 leitt stafrænu byltingu fyrirtækisins, sem hefur stærsta áskrifendahóp fyrir fréttir í heimi í dag.