Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hefur skipað Nick Stagg, fyrrum forstjóra Teather & Greenwood í framkvæmdastjórn Straums.

Áður en Stagg gekk til liðs við Teather & Greenwood plc starfaði hann sem forstjóri Lambert Smith Hampton og þar á undan var hann fjármálastjóri London Shop.

Stagg er með BS gráðu í eðlisfræði frá University College London, og er einnig löggiltur endurskoðandi.

//