Tekjuskattshlutfall á árinu 2006 verður 23,75% sem er lækkun um 1% frá yfirstandandi ári. Meðalútsvar á árinu 2006 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,97% en þetta hlutfall er 12,98% á yfirstandandi ári. Meðalútsvarslækkun milli ára er því 0,01%.

Fjármálaráðuneytið ákveður staðgreiðsluhlutfall hvers árs og er það samtala af tekjuskattshlutfalli samkvæmt lögum um tekjuskatt og útsvarshlutfalli eins og það er að meðaltali samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna.

Staðgreiðsluhlutfall á árinu 2006 verður 36,72% samanborið við 37,73% á þessu ári. Lækkun á staðgreiðsluhlutfalli milli ára verður því 1,01%.
Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,03%. Af 101 sveitarfélagi ætla 74 þeirra að innheimta hámarksútsvar en 3 sveitarfélög verða með lágmarksútsvar.

Áætlað er að á árinu 2006 innheimtist um 148 milljarðar króna fyrir ríki og sveitarfélög með staðgreiðslu opinberra gjalda. Þar af renna um 78 milljarðar króna til sveitarfélaga en um 70 milljarðar króna til ríkissjóðs.