Eftir 17 mánaða leit, hefur breski fjárfestingabankinn Standard Chartered loksins fundið nýjan stjórnarformann. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu bankans. Jose Vinals er sá útvaldi, en hann hefur sinnt stöðum fyrir seðlabanka Spánar og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Tekjur Vinals munu nema 1,25 miljónum punda á ársgrundvelli.