Standard Life hefur dregið tilbaka tilboð sitt í tryggingafélagið Resolution og ætlar ekki að yfirbjóða tilboð Pearl Group samkvæmt því sem segir á fréttavefnum Bloomberg.

Á vef Dow Jones kemur fram að hlutabréf í Standard Life hafi lækkað í kjölfar tilboðs Pearl Group í Resolution og kaupin því ekki eins freistandi og áður.