Matsfyrirtækið Standard & Poor s (S&P) hefur staðfest mat sitt á fjárhagslegum styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM). Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn félagsins er BBB- en það er sama einkunn og S&P hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins.

Fram kemur í tilkynningu að TM hafi frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra tryggingafélaga. Matið veiti TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins.