Stapi fjárfestingarfélag ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 21. desember síðastliðinn með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Stapi varð til við fjárhagslega endurskipulagningu Gnúps fjárfestingarfélags og helsta eign félagsins var 11,2% hlutur í Mosaic Fashions.

Framan af var Stapi í eigu Gnúps, sem aftur var aðallega í eigu Kristins Björnssonar og fjölskyldu og bræðranna Magnúsar og Birkis Kristinssona.