Stapi lífeyrissjóður freistar þess enn að fá eitthvað upp í fjögurra milljarða króna skuld sem sjóðurinn telur sig eiga inni hjá ALMC, áður Straumi. Stapi lýsti ekki kröfu í búið innan þess tímafrests sem gefinn var og því var krafan í búið ekki tekin til greina.

Straumur hefur hins vegar farið í gegnum nauðasamningsferli og starfar nú undir merkjum ALMC. Í ljósi þess að Straumi var ekki slitið telur Stapi ALMC skulda sér fjóra milljarða. Heildarstærð Stapa er í kringum 100 milljarðar króna.