Stapi lífeyrissjóður seldi i dag sex milljónir hluta í Sjóvá, að því er fram kemur í flöggun til Kauphallarinnar. Verð á hlut í Sjóvá var við lokun markaða í dag 12,8 á hlut og miðað við það má gera ráð fyrir að verðmæti hlutarins sé um 77 milljónir króna.

Stapi á ennþá 4,71% heildarhlut í félaginu eftir viðskiptin og sá hlutur gæti verið um 940 milljóna króna virði.