Bandarískar fyrirtækið Spaples hefur gert tilboð í holenska fyrirtækið Corporate Express sem framleiðir vörur til skrifstofunota. Þrátt fyrir að Staples sé einkum þekkt fyrir framleiðslu á heftum og hefturum rekur fyrirtækið yfir 2000 verslanir um allan heim sem selja skrifstofuvörur og fyrir skömmu opnaði fyirirtækið sína fyrstu verslun á Indlandi.

Tilboð Staples í Corporate Express hljóðar upp á 4,8 milljarða bandaríkjadali og er fastlega reiknað með að því verði tekið þrátt fyrir að stjórnir beggja fyrirtækja eigi eftir að samþiggja tilboðið.