© Aðsend mynd (AÐSEND)

Myndin af þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra klæddum sem Captain Kirk og Spock úr Star Trek-þáttunum fór á 900 þúsund krónur á uppboði átaksins Bleika slaufan , sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir. Uppboðinu lauk á miðnætti í gær. Kaupandinn er óþekktur.

Það var ljósmyndarinn Ari Magg sem tók myndina.