Disney hefur keypt Lucasfilm af George Lucas fyrir rúma 4 milljarða dollara. Lucasfilm sló í gegn með Star Wars myndunum sem flestir kannast við. Þetta kemur fram á vef BBC.

Þar kemur einnig fram að Disney hyggst gefa út nýja Star Wars mynd, þá sjöundu, árið 2015. Í framhaldi stefnir fyrirtækið á að gefa út mynd átta og níu og halda þannig áfram með tveggja eða þriggja ára millibili. Síðasta Star Wars myndin kom út árið 2005.

Disney greiðir út helminginn af kaupverðinu með reiðufé og hinn helminginn með 40 milljónum hlutum í bréfum Disney.

Lucas segir að það sé tími til kominn að láta Star Wars í hendur nýrrar kynslóðar af kvikmyndargerðarmönnum.