Fjöldi starfandi samkvæmt skrám dróst saman í hverjum mánuði ársins 2020 miðað við sömu mánuði árið á undan og var hlutfallsleg lækkun 4,8% á milli áranna 2019 og 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Á fyrsta fjórðungi ársins störfuðu 186.669 að meðaltali í hverjum mánuði en 189.736 á sama tímabili ári áður sem er hlutfallsleg lækkun um 1,5%. Samdráttur á milli ára var 5,2% á öðrum ársfjórðungi, 5,3% á þriðja ársfjórðungi og 7,0% á fjórða ársfjórðungi ársins 2020.

Á landsvísu var mestur samdráttur á Suðurnesjum en þar störfuðu að meðaltali 14.685 á mánuði árið 2019 en 13.195 árið 2020 sem er lækkun um 10,1%.

Talning eftir menntunarstigi sýnir meðal annars að hlutfall háskólamenntaðra einstaklinga á vinnumarkaði hefur aukist stöðugt frá 2008.

Talning eftir rekstrarformi sýnir meðal annars að eftir samdrátt frá árinu 2014 hefur hlutfall starfsfólks sem vinna hjá ríkisstofnunum og sveitarfélögum farið vaxandi frá og með árinu 2018.