Icelandair hefur ákveðið að hætta starfsemi sérstaks þjónustuvers í Bandaríkjunum og styrkja með því grundvöll höfuðstöðvanna í Reykjavík.

Með þessari ráðstöfun flytjast verkefni frá Bandaríkjunum til Íslands sem 16 einstaklingar hafa sinnt í Maryland í Bandaríkjunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Þar kemur fram að starfsemin á Íslandi verður efld, opnunartími lengdur og símtölum viðskiptavina bæði austan hafs og vestan svarað hér heima.

Í þjónustuverinu starfa fargjaldasérfræðingar sem tala fjölmörg tungumál og er símtölum sjálfkrafa vísað á starfsmenn eftir því frá hvaða löndum þau berast.

Þá kemur jafnframt fram að eftir breytinguna verður lögð höfuðáhersla á markaðs- og sölustarf á skrifstofu félagsins í Maryland í Bandaríkjunum. Á sama tíma verða breytingar á starfi Icelandair í Evrópu þegar sölusvæði félagsins í Frakklandi og Þýskalandi sameinast undir stjórn Einars Páls Tómassonar svæðisstjóra í Frankfurt.

„Að undanförnu hefur Icelandair sett meiri þunga í markaðsstarf sitt erlendis, að hluta til með því að minnka tímabundið markaðssókn á Íslandi,“ segir í tilkynningunni og jafnframt er tekið fram að viðbrögð við aukinni markaðssókn erlendis hafa verið jákvæð.

„Allar ákvarðanir sem teknar eru miða að því að styrkja stöðu Icelandair,“ segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair í tilkynningunni.

„Hagsmunir fyrirtækisins og Íslendinga eru að virkja markaði erlendis, til dæmis með því að vekja athygli á Íslandi sem hagstæðum áfangastað. Ekkert verður dregið úr þjónustu við viðskiptavini okkar, síður en svo. Þjónustustig á Íslandi hækkar því opnunartími þjónustuvers Icelandair á Íslandi lengist. Við höfum hafið sölu á nýju farrými, Economy Plus, og þægindi í vélum okkar aukast til muna með nýjum sætum, meira sætabili og fullkomnu afþreyingarkerfi.“