Hundraðasti starfsmaðurinn hóf nýverið störf hjá hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail. Með ráðningunni hefur starfsmönnum fyrirtækisins fjölgað um 100% á einu ári. Starfsmenn LS Retail voru voru rúmlega 50 við upphaf síðasta árs í 10 löndum. Í tilefni af áfanganum fengu allir starfsmenn að gjöf landsliðstreyju HSÍ merkta númerinu 100.

Fram kemur í tilkynningu frá LS Retail að liðsheildin sé mikilvæg í starfsemi fyrirtækisins og mikil samheldni meðal starfsfólks. Þessu má geta til viðbótar að LS Retail hefur verið styrktaraðili kvennalandsliðs Íslands í handbolta síðan 2011.

Þessir hundrað starfsmenn LS Retail þjóna um 130 umboðsaðila sem selja lausnir fyrirtækisins í rúmlega 60 löndum. Vörur LS Retail eru notaðar í um 40.000 verslunum um allan heim.