Starfsfólki Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur verið tilkynnt um skipulagsbreytignar sem meðal annars hafa í för með sér fækkun starfsfólks úr 36 í 27. Segir í tilkynningu frá félaginu að vegna gríðarlegs samdráttar í sementssölu og óvissu um stöðu byggingariðnarins næstu misseri sé nauðsynlegt að draga úr rekstrarkostnaði.

Fréttatilkynning í heild:

Vegna gríðarlegs samdráttar í sementssölu síðustu ár og óvissu um stöðu byggingariðnaðarins næstu misseri er nauðsynlegt fyrir Sementsverksmiðjuna á Akranesi að draga úr rekstrarkostnaði.

Starfsfólki verksmiðjunnar hefur þegar verið tilkynnt um skipulagsbreytingar sem hafa í för með sér fækkun starfsfólks úr 36 í 27.

Verksmiðjan hættir sementsdreifingu en semur þess í stað við verktaka um dreifingu um land allt. Dráttarbílum, sem verksmiðjan hefur haft á rekstrarleigu og notað við sementsdreifingu, verður skilað. Sementsflutningaskipinu Skeiðfaxa verður lagt tímabundið. Skeiðfaxi hefur m.a. flutt sement sem notað var við gangnagerð á Norðurlandi og Vestfjörðum, en þeim framkvæmdum er nú lokið.

Síðustu áratugi voru árlega framleidd að jafnaði um 100 þúsund tonn af sementi. Á þessu ári er fyrirsjáanlegt að sementssalan nemi rétt tæpum 40 þúsund tonnum og verður árið þá söluminnsta ár verksmiðjunnar frá upphafi. Stefnt er að því að gangsetja ofna Sementsverkmiðjunar í janúar næstkomandi og framleiða á fimm vikum sement sem ætlað er að mæta þörfum byggingariðnaðarins fram á vor.