Starfsgreinasamband Íslands hefur ekki átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins síðustu daga og er ekki hluti samkomulagi samtakanna við Flóabandalagið, VR, LÍF og StéttVest um að fresta verkfalli. Starfsgreinasambandið hefur því ekki tekið neina ákvörðun um að fresta verkfalli sem fyrirhugað er 28. og 29. maí né ótímabundnu verkfalli þann 6. júní. Þetta kemur fram á vef Starfsgreinasambandsins .

„Viðræður eru alltaf tvíhliða og á meðan við höfum ekki átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins þá er staðan óbreytt hvað varðar þau 15 aðildarfélög sem Starfsgreinasambandið fer með umboð fyrir,“ segir í fréttinni. Kemur hins vegar fram að boðað hafi verið til samningafundar á morgun í húsakynnum ríkissáttasemjara.