Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu verkfalli 10.000 félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands dagana 19. og 20. maí. Að auki hefur ótímabundnu verkfalli sem átti að hefjast 26. maí verið frestað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Starfsgreinasambandinu.

Þar kemur fram að það sé mat samninganefndar Starfsgreinasambandsins að gefinn skuli tími til úrslitatilrauna í samningaviðræðum á þessu stigi málsins.

„Með þessu axlar SGS ábyrgð á erfiðum kjaradeilum og gefur Samtökum atvinnulífsins tækifæri til að koma með tillögur sem hönd er á festandi áður en landið lamast í verkföllum og hér skellur á neyðarástand á vinnumarkaði,“ segir í tilkynningunni.

Þannig hefur samninganefnd Starfsgreinasambandsins ákveðið að verkföll sem áttu að koma til framkvæmda 19. og 20. maí er frestað til 28. og 29. maí. Þá hefur ótímabundnu verkfalli sem átti að koma til framkvæmda 26. maí frestað til 6. júní.

„Eftir tvær vikur hefjast verkföll af stærðargráðu sem við höfum ekki séð áður ef ekki tekst að semja. Þau munu hafa veruleg og víðtæk áhrif og það er mikið til vinnandi að afstýra slíku. Framlag Starfsgreinasambandsins í þessu samhengi er að gefa andrými næstu tvær vikurnar til að semja svo ekki þurfi að koma til þessara hörðu aðgerða,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins.