Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur gengið frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að fresta fyrirhuguðum verkföllum um sex daga. Þetta kemur fram á vefsíðu Starfsgreinasambandsins .

„Ljóst er að viðræður eru hafnar af fullum þunga og það er mat samninganefndarinnar að gefinn skuli tími til að reyna til þrautar um að samningar náist. Kröfugerð Starfsgreinasambandsins er sem fyrr grundvöllur áframhaldandi viðræðna,“ segir í tilkynningu Starfsgreinasambandsins.

Verkfalli 28. og 29. maí hefur verið frestað til 3. og 4. júní, og ótímabundnu verkfalli 6. júní hefur verið frestað til 12. júní.