Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst skipa starfshóp sem vinna á hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Starfshópurinn er skipaður í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þar segir að hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið verði lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar áður en stefnumarkandi ákvarðanir verða teknar um fjármálakerfið. Hvítbókin á að skapa traustan grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanatöku um málefni er varða fjármálakerfið, framtíðargerð þess og þróun. „Leiðarljósin í vinnu við hvítbókina verða aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleiki,“ segir í sáttmálanum.
Í sáttmálanum segir einnig að ríkisstjórnin vilji vinna að frekari skilvirkni í fjármálakerfinu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starfsemi fjármálafyrirtækja og að sérstaklega verði litið til annarra lítilla opinna hagkerfa og reynslu annars staðar á Norðurlöndunum við mótun framtíðarsýnarinnar.
Starfshópnum er falið að ljúka vinnu sinni fyrir 15. maí með skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra. Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins verður formaður hópsins.
Í hópnum munu einnig sitja:
- Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabanka Íslands
- Guðjón Rúnarsson, lögmaður fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
- Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð
- Sylvía K. Ólafsdóttir, deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar.