Glitnir uppgjör 07.05.08
Glitnir uppgjör 07.05.08
© BIG (VB MYND/BIG)
Fjármálaeftirlitið hefur afturkallað starfsleyfi Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf. sem viðskiptabanka. Afturköllun starfsleyfa framangreindra aðila miðast við 19.júlí síðastliðinn. Úrskurður um slit bankanna samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki hefur verið kveðinn upp og því kom til afturköllunar starfsleyfa. Bankarnir féllu fyrir tæpum þremur árum. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins.