Athygli hefur vakið í fámennum hópi áhugasamra að embætti sérstaks saksóknara birtir ekki lengur lista yfir starfsmenn á heimasíðu embættisins.

„Ákvörðun var tekin um að taka listann niður, því við urðum ekki vör við að hann gerði vinnu okkar auðveldari,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. „Það er meira að honum hafi fylgt óþægilega mikið ónæði.“

Hann segir að embættið vilji gjarnan vera í góðu sambandi við almenning og ef komist verður að þeirri niðurstöðu að opinber starfsmannalisti styrki þetta samband komi til greina að setja hann upp á ný.

Ólafur Þór Hauksson - Sérstakur saksóknari
Ólafur Þór Hauksson - Sérstakur saksóknari
© BIG (VB MYND/BIG)