Atkvæðagreiðslu um kjarasamning AFLs og RSÍ við Alcoa Fjarðaál lauk í gær og var hann samþykktur með 90% atkvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Helstu breytingar í nýjum samningi felast m.a. í hækkun grunnlauna og breyttu vinnutímafyrirkomulagi. Þannig mun til dæmis vinnustundum vaktavinnufólks á mánuði fækka auk þess sem kveðið er á um viðbætur og hækkanir á launatöflum, árlega hækkun desember- og orlofsuppbóta og samið er um eingreiðslu til starfsmanna. Einnig er kveðið á um fæðingarstyrk Alcoa Fjarðaáls til starfsmanna sinna sem fara í fæðingar- og foreldraorlof.

Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls kveðst ánægður með samninginn og þann mikla stuðning sem hann fékk meðal starfsmanna í atkvæðagreiðslunni. Hann telur að samningurinn feli í sér mikla kjarabót fyrir starfsfólk Fjarðaáls.

Á kjörskrá voru 393 starfsmenn en alls greiddu 180 starfsmenn atkvæði eða 45,8%.