Stjórn Glitnis hefur ákveðið að veita öllum starfsmönnum bankans kaupauka í formi 7.000 hluta í bankanum á verðinu 25,5 krónur á hlut miðað við fullt starf. Það jafngildir 178.500 krónum.

Eigið fé bankans jókst um 73% frá árslokum 2005 og nam 146,1 milljarði króna í lok desember. Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 15,0%, þar af A-hluti 10,8%.