Bókfært virði þeirra hlutabréfa sem renna skulu til starfsmanna Landsbankans er 4,7 milljarðar króna, að því er kemur fram í fréttatilkynningu bankans um afkomu hans á fjórða ársfjórðungi. Þar er tekið fram að stór hluti fjárhæðarinnar rennur til ríkisins í formi skatta.

Þann 15. desember 2009 gerðu Landsbankinn, LBI hf. (gamli Landsbankinn) og fjármálaráðherra samning um fjárhagsuppgjör milli Landsbankans hf. og LBI hf. Með samþykki ríkisins var Landsbankanum gert að koma á árangurstengdu launakerfi fyrir alla starfsmenn sem tæki mið af verðmæti tiltekinna eignasafna stærri fyrirtækja sem lágu til grundvallar ákvörðunar á fjárhæð skilyrts skuldabréfs sem er hluti af fjárhagsuppgjörinu.

Samkvæmt þessu samkomulagi skyldi LBI hf. ráðstafa af eign búsins og þar með eign kröfuhafa allt að 2% eignarhlut í bankanum sem dreift yrði til starfsmanna samkvæmt úthlutunarreglum sem Landsbankinn skyldi koma á. Á hluthafafundi Landsbankans þann 27. mars síðastliðinn var samþykkt að afhenda þessa hluti til Landsbankans með þeirri kvöð að þeim skyldi dreift til starfsmanna.

Unnið er að útfærslu fyrirkomulags dreifingar á hlutabréfum til starfsmanna. Slíkt fyrirkomulag skal vera í samræmi við reglur FME og er einnig háð samþykki hluthafafundar, að því er kemur fram í tilkynningunni.