Sex starfsmenn rannsóknarteymis Thomson Reuters fréttastofunnar hafa fært sig yfir til Standard & Poor´s.

Þeir mynda þar nýja deild sem stundar rannsóknir fyrir vogunarsjóði og aðra fjárfesta.

Hópurinn mun samkvæmt frétt Reuters hafa aðgang að gögnum um eignir sem Standard & Poor´s notar þegar fyrirtækið ákvarðar lánshæfismat, þrátt fyrir að hópurinn muni ekki taka þátt í ákvörðun lánshæfiseinkunna.