Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, stærsta einstaka bæjarstarfsmannafélagið innan BSRB, undirritaði í nótt nýja kjarasamninga við Reykjavíkurborg. Samningurinn gildir frá 1. febrúar síðastliðnum og til loka apríl 2015. Laun hækka að lágmarki um 2,8% og ekki minni en 8000 krónur. á mánuði fyrir dagvinnu í fullu starfi.

Tvær eingreiðslur verða greiddar, ein við upphaf samningstíma að upphæð 14.600 kr. og önnur þann 1. febrúar 2015 að upphæð 20.000 kr., desemberuppbót hækkar í 79.500 kr. og orlofsuppbót verður 39.500. Þá er kveðið á um breytingar á launatöflu og vaktafyrirkomulagi auk þess sem framlag til starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóða hækkar um 0,1% frá 1. febrúar2014.