Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hefur veitt stjórnendum og starfsmönnum samstæðunnar kauprétti að hlutabréfum í bankanum að nafnverði 650 milljóna króna.

Þar af var aðilum í framkvæmdastjórn Straums veittur kaupréttur að hlutum að nafnvirði samtals 296 milljóna króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi en um markmið með kaupréttarkerfi bankans er í tilkynningunni vísað til Starfskjarastefnu Straums sem samþykkt var á aðalfundi bankans 15. apríl 2008.

Samkvæmt tilkynningu bankans til Kauphallarinnar er tilhögun kaupréttanna með eftirfarandi hætti:

Viðmiðunargengi: Viðmiðunargengi kauprétta er ISK 1,67. Viðmiðunargengið er meðalgengi síðustu tuttugu viðskiptadaga fyrir útgáfudag.

Útgáfudagur: 16.02.2009

Réttindaávinnsla: Handhafar kauprétta ávinna sér réttindi Í þremur jöfnum áföngum (1/3), þ.e. eftir fyrsta, annað og þriðja ár frá útgáfudegi og er kaupréttur í gildi fram að lokum fimmta árs.

Gildistími: Gildistími kauprétta er fimm ár. Kaupréttur fellur niður við starfslok.

Nýting: Áunninn kauprétt má nýta hvenær sem er á gildistímanum í samræmi við áunnin réttindi, nema lög og reglur kveði á um tímabundin takmörk við viðskiptum.