Níu af þrettán starfsmönnum Brimborgar á Akureyri var sagt upp nú um mánaðamótin þar sem ákveðið var að hætta rekstri tveggja verkstæða fyrirtækisins. Frá þessu greinir Vikudagur .

„Annað verkstæðið sérhæfir sig í þjónustu við atvinnutæki og hitt verkstæðið sinnir fólksbílum. Við höfum samið við fyrirtækið Kraftbíla um að sjá um þjónustu við atvinnutækin og síðan höfum við samið við Höld um að sjá um fólksbílana. Starfsmönnum okkar býðst að flytja sig yfir á þessi verkstæði,“ segir Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar í samtali við Vikudag.

Brimborg mun áfram selja nýja og notaða bíla á Akureyri. Sömuleiðis verði starfsrækt varahlutaverslun og bílaleiga. Höldur hefur keypt húsnæði Brimborgar og leigir Brimborg síðan hluta þess.