Björgólfur Jóhannsson.
Björgólfur Jóhannsson.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Starfsmönnum Icelandair Group fjölgaði um 300 á síðasta ári miðað við árið á undan. Þetta kemur fram í ársskýrslu fyrirtækisins sem var birt í gær. Starfsmennirnir voru að meðaltali 2850 í fyrra.

Launakostnaður jókst um 35,6 milljónir dollara á síðasta ári frá árinu á undan og var hann í heild 239,4 milljónir dollara. Það samsvarar 27 milljörðum króna.

Í ársskýrslu Icelandair Group segir að ástæða hækkunar launakostnaðar sé aukin umsvif starfsemi fyrirtækisins og launahækkana á milli ára.