Viðskipta­ hraðallinn Startup Tourism fór fyrst af stað í fyrra, en honum er ætlað að styðja framgang nýrra viðskiptahugmynda og sprota­fyrirtækja í ferðaþjónustu.

Start­up Tourism er tíu vikna við­skiptahraðall þar sem allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.

Íslandsbanki er einn af bakhjörl­um verkefnisins, ásamt Isavia, Bláa Lóninu og Vodafone. Ice­landic Startups fer aftur á móti með framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Íslenska ferðaklas­ann. Opið er til umsóknir fram til 16. janúar 2017.