Icelandair kynnir um þessar mundir áætlun félagsins fyrir næsta sumar. Alls verður flogið til 23 áfangastaða og allt að 136 flug á viku.

Meðal nýjunga er reglulegt flug til Stavanger í Noregi og Dusseldorf í Þýskalandi.

Þá verður tíðni aukin í flugi til Toronto í Kanada frá því sem verið hefur, en í heild er um að ræða minni flugáætlun en á síðasta sumri og flug til Orlando í Florida í Bandaríkjunum verður fellt niður næsta sumar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

„Við lögum sumaráætlun okkar að þeim aðstæðum sem ríkja hér á Íslandi og á okkar helstu mörkuðum,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningunni.

„Við ætlum okkur að ná góðum árangri í að fá ferðamenn til landsins og gerum breytingar á áætlun okkar sem miða að því. Við bætum inn þessum nýju stöðum í Noregi og Þýskalandi en fellum út flug til Orlando frá 8. maí til 29. september, en sá staður hefur ekki leikið stórt hlutverk í sumaráætlun okkar að undanförnu. Þá gerum við breytingar á flugtíðni á vissa staði sem miða að því að auka hagkvæmni.“

Birkir Hólm segir sérstöðu Icelandair í flugheiminum felast í leiðakerfinu og staðsetningunni hér á Íslandi

„Það gerir okkur kleift að breyta um áherslur og sækja fram á einum markaði meðan varist er á öðrum,“ segir Birkir Hólm.

„Nú er dauft yfir íslenska markaðinum, og þá sækjum við fram á erlendum mörkuðum, einkum á ferðamannamarkaðinum til Íslands, þar sem eru nýir möguleikar vegna gengisáhrifa. Ísland er ódýrara land en verið hefur. Við búum yfir miklum sveigjanleika og munum nýta okkur hann.“

Næsta sumar flýgur Icelandair til fimm staða í Norður-Ameríku, þ.e. Boston, New York, Minneapolis, Toronto og Halifax, og til 18 staða í Evrópu, Osló, Bergen, Stavanger, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Helsinki, Glasgow, Manchester, London, Amsterdam, Frankfurt, Dusseldorf, Berlínar, Munchen, París, Madrid, Barcelona og Mílanó.