Stefán Einar Stefánsson, fyrrverandi formaður VR, hefur verið ráðinn sem blaðamaður á Morgunblaðinu. DV greinir frá þessu.

Stefán Einar er með BA í guðfræði og MA í viðskiptasiðfræði en hefur að auki starfað sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík. Þekktastur er hann þó fyrir formennskutíð sína hjá stéttarfélaginu VR.