Stefán Eiríksson lögreglustjóri er á meðal umsækjenda um stöðu forstjóra Samgöngustofu. Þetta staðfestir Stefán í samtali við Viðskiptablaðið. Umsóknarfrestur rann út þann 22. júní síðastliðinn.

Það var fréttavefurinn Eyjan sem greindi fyrst frá orðrómi þess efnis að Stefán hefði sótt um. Á orðinu á götunni segir jafnframt að Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, hefði sótt um starfið.