Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við HÍ, er hættur í stjórn Íbúðalánasjóðs. Honum var veitt lausn úr stjórn sjóðsins á föstudaginn. Hann var tilnefndur af Vinstri grænum í stjórnina.
„Það liggur í því að ég er að taka að mér aukin verkefni á mínu fagsviði, bæði hér heima og erlendis,“ segir Stefán í samtali við VB.is aðspurður um ástæður þess að hann hætti í stjórninni. Hann segir að mikið vinnuálag fylgi því að sitja í stjórninni.
Mikil hreyfing hefur verið á stjórn Íbúðalánasjóðs undanfarna mánuði. Rósa Guðbjartsdóttir var skipuð í stjórnina í haust en hætti í henni einungis fáeinum dögum síðar. Þá baðst Kristrún Heimisdóttir lausnar í byrjun desember þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins.
Stefán er einnig stjórnarformaður Tryggingastofnunar ríkisins. Hann er tilnefndur af félagsmálaráðherra í stjórnina. Hann mun gegna því áfram.