Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra hefur skipað Stefán Hauk Jóhannesson ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1. nóvember nk. Einar Gunnarsson sem verið hefur ráðuneytisstjóri frá árinu 2009, verður fastafulltrúi hjá fastanefnd Íslands í New York frá 1. janúar nk.

Stefán hefur undanfarin ár gegnt ábyrgðarstöðum í utanríkisþjónustunni, á aðalskrifstofu og sendiskrifstofum í Brussel og Genf. Var hann m.a. aðalsamningamaður í aðildarviðræðum við ESB og gegni starfi skrifstofustjóra viðskiptaskrifstofu og almennrar skrifstofu. Undanfarna mánuði var Stefán yfirmaður eins af eftirlitsteymum ÖSE í Úkraínu.

Einar hefur lengi starfað í utanríkisþjónustu, en áður en hann tók við embætti ráðuneytisstjóra var hann m.a. starfsmannastjóri og skrifstofustjóri yfir viðskiptasamningum. Einnig hefur hann gegnt ábyrgðarstöðum í Brussel og Genf.